Gleðilegt ár!
January 3, 2017 10:29 am Leave your thoughtsVið vonum að þið hafið öll átt ánægjuleg jól og áramót og auðvitað haft tíma til að æfa ykkur aðeins. Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 4.janúar.
Hafir þú áhuga á að sækja um í Nýja tónlistarskólanum biðjum við þig um að fara inn á sérstaka skráningarsíðu skólans.
Fara á skráningarsíðuEf einhverjar spurningar vakna, eða þig vantar aðstoð, þá endilega sendu okkur línu.
×Við vonum að þið hafið öll átt ánægjuleg jól og áramót og auðvitað haft tíma til að æfa ykkur aðeins. Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 4.janúar.
Karma Brigade, ein af hljómsveitum Miðstöðvarinnar (rythmadeild Nýja tónlistarskólans), gerði sér lítið fyrir og sigraði Jólalagakeppni Rásar 2, með laginu Jólanna hátíð er. Við óskum þeim innilega til hamingju.
Óperu-og sönglaga tónleikar verða haldnir föstudaginn 18. nóvember kl 18:00. Fluttir verða nokkrir dúettar og tríó ásamt sönglögum úr ýmsum áttum. Þetta verða fjölbreyttir og skemmtilegir tónleikar þar sem nemendur spreyta sig á hinum ýmsu hlutverkum. Söngdeildin hefur fengið til liðs við sig Jóhann Smára Sævarsson bassa til að vinna þessi verkefni leikrænt á sviði og er það mikill fengur... Lesa meira
Foreldraviðtöl verða frá fimmtudeginum 13. til miðvikudagsins 19.október. Þá mæta foreldrar/ forráðamenn með nemandanum í tímann, fá að heyra hvað verið er að fást við hverju sinni. Síðan er gott að nemandinn bregði sér fram ef foreldri og kennari þurfa að ræða einslega. Við hvetjum foreldra/ forráðamenn að vera í sambandi við kennara og stjórnendur ef eitthvað bjátar á. Hvort... Lesa meira
Nú erum við búin að skipuleggja strengjasamspil fyrir haustönnina. Ég vil biðja ykkur um að skoða dagsetningarnar vel og vandlega og taka frá þessa daga. Æfingarnar verða: og 29.október, 19.nóvember og 3 desember. Þessari vinnu lýkur svo með stuttum tónleikum þann 3.desember kl.13:30 Dagskrá hvers laugardags verður svona: 11-11.45 allir strengjanemendur saman – strengjasveit 11:50-12.30 minni... Lesa meira
Við eigum nokkur laus pláss í forskóla, söngdeild og fiðludeild. Vinsamlegast hafið samband á milli 13 og 18 alla virka daga eða með tölvupósti: [email protected]
Kæru foreldrar og nemendur Skólastarfið í Nýja tónlistarskólanum hefst fimmtudaginn 25. ágúst samkvæmt stundarskrá. Kennarar munu hafa samband við ykkur í gegnum síma eða tölvupóst til að finna hentugan tíma fyrir hljóðfærakennsluna. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna í síma 553-9210 eða sendið tölvupóst, [email protected] til að ganga frá hvernig greiða skal skólagjöldin í ár. Þeir sem ætla... Lesa meira
Nú er Nýi tónlistarskólinn kominn í sumarfrí. Skrifstofan verður opin fram í miðjan júní, frá 13-17. Ef þið þurfið að ná í okkur þá endilega sendið okkur línu á [email protected] Takk fyrir veturinn!
Kristín Sunna Uwesdóttir mun halda framhaldsprófstónleika sína fimmtudaginn 26.maí kl.20 á sal Nýja tónlistarskólans. Á efnisskránni eru verk eftir Bach, Polenc, Henze og Debussy. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
Nú fer að styttast í vortónleikaröð skólans. Fyrir utan tónfundina sem hver kennari heldur fyrir sína nemendur, verða þrennir almennir tónleikar: föstudaginn 20.maí (yngri deildir), mánudaginn 23.maí (eldri deildir) og miðvikudaginn 25.maí (söngdeild).