Kæru foreldrar og nemendur

Skólastarfið í Nýja tónlistarskólanum hefst fimmtudaginn 25. ágúst samkvæmt stundarskrá.

 

Kennarar munu hafa samband við ykkur í gegnum síma eða tölvupóst til að finna hentugan tíma fyrir hljóðfærakennsluna.

Vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna í síma 553-9210 eða sendið tölvupóst, [email protected] til að ganga frá hvernig greiða skal skólagjöldin í ár.

 

 

Þeir sem ætla að nýta sér frístundastyrkinn þurfa að gera það í samráði við skrifstofu skólans.

 

Hálft nám á framhaldsstigi verður ekki í boði.

 

 

Að gefnu tilefni vil ég minna á að ef nemandi vill segja upp skólavist þarf hann að gera það með þriggja mánaða fyrirvara.

 

Vinsamlegast látið skrifstofu vita af breyttum heimilisföngum, símanúmerum eða tölvupósti.