Foreldraviðtöl
11.10.16
Foreldraviðtöl verða frá fimmtudeginum 13. til miðvikudagsins 19.október.
Þá mæta foreldrar/ forráðamenn með nemandanum í tímann, fá að heyra hvað verið er að fást við hverju sinni. Síðan er gott að nemandinn bregði sér fram ef foreldri og kennari þurfa að ræða einslega. Við hvetjum foreldra/ forráðamenn að vera í sambandi við kennara og stjórnendur ef eitthvað bjátar á.
Hvort sem það er í foreldraviðtölum, með tölvupósti eða í síma.
Svo má líka alveg láta kennarann vita ef nemandinn og hans fólk er ánægt með kennsluna.