April 3, 2020 1:46 pm
Published by Sigurður Sævarsson
Kæru nemendur og foreldrar Ég vona að þið séuð öll við góða heilsu. Í dag, föstudaginn 3. apríl, er síðasti kennsludagur Nýja tónlistarskólans fyrir Páskafrí. Kennslan hefst svo aftur fimmtudaginn 16. apríl. Eins og þið sjálfsagt flest hafið heyrt þá hafa yfirvöld ákveðið að framlengja samkomubanninu til 4. maí. Að óbreyttu munum við því byrja kennsluna eftir Páskafrí... Lesa meira
March 24, 2020 9:34 am
Published by Sigurður Sævarsson
Kæru nemendur og foreldrar Seint í gær, 23. mars, fengu tónlistarskólarnir í Reykjavík tilmæli frá Skóla- og frístundasviði um að öll kennsla skólanna, hvort sem um hóptíma eða einkatíma er að ræða, fari fram í fjarkennslu frá miðnætti 23. mars. Með öðrum orðum verðum við að loka skólahúsnæðinu hér í Nýja tónlistarskólanum þar til annað verður ákveðið, en... Lesa meira
March 16, 2020 11:07 am
Published by Sigurður Sævarsson
Kæru nemendur og forráðamenn Mig langar að kynna þær breytingar sem verða á skólastarfinu hér í Nýja tónlistarskólanum á meðan á samkomubanninu stendur. Hljóðfæra- og söngkennsla helst óbreytt. En sem áður biðjum við nemendur að fara eftir öllum tilmælum um þrifnað og samskiptum við aðra nemendur. Forskólinn og tónfræði yngri nemenda sem eru hjá Elínu falla niður. Elín... Lesa meira
March 2, 2020 5:45 pm
Published by Sigurður Sævarsson
Kæru nemendur og forráðamenn Nú sækja að okkur ýmsar pestir og vírusar, úr öllum áttum. Það kemur því miður oft fyrir að nemendur mæta veikir í tónlistarskólann. Þetta er als ekki gott og verður bara til þess að þessar pestir og vírusar grassera enn lengur. Ég vil því biðja ykkur, nemendur og forráðamenn, að vinna með okkur í... Lesa meira
February 25, 2020 2:40 pm
Published by Sigurður Sævarsson
Vetrarfrí verður frá föstudeginum 28. febrúar til og með mánudeginum 2. mars. Kennsla hefst aftur þriðjudeginum.
February 25, 2020 2:38 pm
Published by Sigurður Sævarsson
Eins og undanfarin ár verður engin kennsla í Nýja tónlistarskólanum á Öskudaginn.
February 12, 2020 2:36 pm
Published by Sigurður Sævarsson
Laugardaginn 15. febrúar verður haldinn árlegur Þemadagur Nýja tónlistarskólans. Þemað í ár er frönsk og spænsk tónlist. Boðið verður upp á fjölda tónleika: Þeir fyrstu hefjast kl.10:30. Þar mun Forskólinn sjá um tónlistarflutning ásamt gestaspilurum Síðan verða stuttir tónleikar í boði fram eftir deginum. Og auðvitað, eins og áður, verður boðið upp á nýsteiktar kleinur og heitt súkkulaði. Við hvetjum... Lesa meira
December 13, 2019 1:29 pm
Published by Sigurður Sævarsson
Síðasti kennsludagur, fyrir jólafrí, verður föstudaginn 20. desember. Kennsla hefst aftur mánudaginn 6. janúar GLEÐILEG JÓL!
December 13, 2019 1:26 pm
Published by Sigurður Sævarsson
Almennir jólatónleikar verða fernir þetta árið: föstudaginn 13. desember kl.18 mánudaginn 16. desember kl.18 (söngdeild+hljóðfæradeildir) miðvikudaginn 18. desember kl.18 föstudaginn 20. desember kl.18 (forskóli og gestahljóðfæraleikarar)
December 13, 2019 1:23 pm
Published by Sigurður Sævarsson
Kennarar halda jólatónfundi með sínum nemendum: desember kl. 11:00 – Ilka desember kl. 13:00 – Helgi desember kl. 13:00 – Vilhelmína desember kl. 14:00 – Jón og Galina desember kl. 15:00 – Helga desember kl. 17:00 – Gítardeild desember kl. 17:00 – Bjarni