Nú fer að styttast í vortónleikaröð skólans. Fyrir utan tónfundina sem hver kennari heldur fyrir sína nemendur, verða þrennir almennir tónleikar: föstudaginn 20.maí (yngri deildir), mánudaginn 23.maí (eldri deildir) og miðvikudaginn 25.maí (söngdeild).
Categories for
Tónleikar
Næstu tónleikar skólans verða föstudaginn 8.apríl kl.18 á sal skólans. Allir velkomnir.
Páskafrí
Páskafrí Nýja tónlistarskólans hefst mánudaginn 21.mars. Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 29.mars. Gleðilega Páska!
Forkeppni fyrir Nótuna
Forkeppni fyrir Nótuna, uppskeruhátíð tónlistarskólanna, verður haldin um helgina. Tinna Rún Emilsdóttir, píanónemandi, mun taka þátt í keppninni fyrir hönd skólans. Hún ætlar að leika Menúett í G-dúr eftir J.S. Bach. Við óskum henni góðs gengis og þökkum henni fyrir að taka þátt.
Tónleikar
Næstu tónleikar skólans verða föstudaginn 11.mars kl.18 á sal skólans. Allir velkomnir!
Tónleikar
Næstu tónleikar skólans verða föstudaginn 8.apríl kl.18. Aðgangur ókeypis og allir velkomnir
Vetrarfrí
Vetrarfrí, í Nýja tónlistarskólanum, verða fimmtudaginn 25. og föstudaginn 26. febrúar.
Foreldraviðtöl 15. til 19. febrúar
Á hverri önn eru haldin foreldraviðtöl. Þá mæta foreldrar/forráðamenn með nemandanum í tímann, fá að heyra hvað verið er að fást við hverju sinni. Síðan er gott að nemandinn bregði sér fram ef foreldri og kennari þurfa að ræða einslega. Við hvetjum foreldra/forráðamenn að vera í sambandi við kennara og stjórnendur ef eitthvað bjátar á. Hvort sem það er í... Lesa meira
Þemadagur Nýja tónlistarskólans
Laugardaginn 13. febrúar verður haldinn árlegur Þemadagur Nýja tónlistar-skólans. Þemað í ár er þýsk og austurísk tónlist. Boðið verður upp á ferna tónleika: þeir fyrstu hefjast kl.11 og síðustu kl.15. Svo verður náttúrulega, eins og áður, boðið upp á nýsteiktar kleinur og heitt súkkulaði. Við hvetjum nemendur til að taka með sér bæði fjölskyldumeðlimi og vini á þennan skemmtilega dag.
Frí á Öskudag
Engin kennsla verður á Öskudag, miðvikudaginn 10. febrúar.