Laugardaginn 13. febrúar verður haldinn árlegur Þemadagur Nýja tónlistar-skólans. Þemað í ár er þýsk og austurísk tónlist. Boðið verður upp á ferna tónleika: þeir fyrstu hefjast kl.11 og síðustu kl.15. Svo verður náttúrulega, eins og áður, boðið upp á nýsteiktar kleinur og heitt súkkulaði.

Við hvetjum nemendur til að taka með sér bæði        fjölskyldumeðlimi og vini á þennan skemmtilega dag.