Nám í Nýja Tónlistarskólanum

Hafir þú áhuga á að sækja um í Nýja tónlistarskólanum biðjum við þig um að fara inn á sérstaka skráningarsíðu skólans.

Fara á skráningarsíðu

Ef einhverjar spurningar vakna, eða þig vantar aðstoð, þá endilega sendu okkur línu.

×

Categories for

Tónfundir kennara

16.05.19

Tónfundir þar sem hver kennari er með tónleika með sínum nemendum:   Chrissie & Helga – fimmtudaginn 16. maí kl. 17:00 Ilka – laugardaginn 18. maí kl. 11 Pétur & Kristófer – mánudaginn 20. Maí kl. 18:00 Helgi – þriðjudaginn 21. Maí kl. 18:00 Forskóli – miðvikudaginn 22. Maí kl. 17:00 Galina & Jón – fimmtudaginn 23. maí kl. 17:00... Lesa meira

Tónleikar í Hörpu

13.05.19

Nemendur Nýja tónlistarskólans halda tónleika í Hörpu, nánar tiltekið Hörpuhorninu, laugardaginn 18.maí kl.14 Aðgangur ókeypis og allir velkomnir

Tónleikar rythmadeildar

09.05.19

Miðvikudaginn 15.maí kl.19:30 mun Miðstöðin, rythmadeild Nýja tónlistarskólans, halda vortónleika sína. Allir velkomnir.

Þemadagur og 40 ára afmæli Nýja tónlistarskólans

15.03.19

Á þessu ári eru 40 ár liðin síðan Ragnar Björnsson, organisti, stjórnandi og tónskáld, stofnaði Nýja tónlistarskólann. Á laugardaginn ætlum við að halda upp á þennan áfang með okkar árlegu þematónleikum. Þá mun gestum bjóðast að setjast inn á stutta tónleika, skoða skólann og þiggja léttar veitingar. Dagskrá dagsins: 10:30 Forskóli og gestir 11:00 Yngri nemendur 12:00 Samspilstónleikar 13:00 Eldri... Lesa meira

Tónleikar

01.03.19

Tónleikar verða á sal skólans fimmtudaginn 14. og föstudaginn 15.mars. Tónleikarnir hefjast kl.18, báða dagana.

Öskudagur

27.02.19

Engin kennsla er í skólanum á Öskudag.  

Þemadagur Nýja tónlistarskólans

07.02.19

Undafarin ár höfum við hér í Nýja tónlistarskólanum haldið Þemadag á Degi Tónlistarskólanna. Þetta ár ætlum við að breyta aðeins til, þar sem skólinn á 40 ára afmæli. Þemadagurinn/afmælisveislan verður haldin laugardaginn 30. mars. Við munum auglýsa þetta betur þegar nær dregur.

Foreldraviðtöl

10.01.19

Foreldraviðtöl verða frá mánudeginum 4. til föstudagsins 8. febrúar. Þá mæta foreldrar/ forráðamenn með nemandanum í tím-ann, fá að heyra hvað verið er að fást við hverju sinni. Síðan er gott að nemandinn bregði sér fram ef foreldri og kennari þurfa að ræða einslega. Við hvetjum foreldra/ forráða-menn að vera í sambandi við kennara og stjórnendur ef eitthvað bjátar á.... Lesa meira

Tónleikar

07.01.19

Fyrstu tónleikar vorannar verða mánudaginn 4. febrúar á sal skólans. Allir velkomnir