Haustfrí
Kæru nemendur og forráðamenn. Haustfrí verður í Nýja tónlistarskólanum dagana 21. til 25. október. Föstudag til þriðjudags. Kennsla hefst svo aftur á miðvikudeginum.
Skólaár hefst
Kæru foreldrar og nemendur Skólastarfið í Nýja tónlistarskólanum hefst þriðjudaginn 30. ágúst samkvæmt stundarskrá. Kennarar munu hafa samband við ykkur, dagana fyrir upphaf kennslunnar, í síma eða tölvupósti til að finna hentugan tíma fyrir hljóðfæra- söngkennsluna.
Skólaslit
Kæru nemendur og foreldrar. Skólaslit Nýja tónlistarskólans verða föstudaginn 27. maí kl.18 í Grensáskirkju. Þar verða afhent prófskírteini fyrir áfanga- og stigspróf sem nemendur hafa tekið á skólaárinu. Einnig verður boðið upp á tónlistarflutning. Athöfnin tekur innan við 30 mínútur.
Páskafrí
Páskafrí hefst næsta mánudag, 11. apríl. Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 19. apríl. GLEÐILEGA PÁSKA!
Tónleikar 7. og 8. mars
Almennir tónleikar verða mánudaginn 7. og þriðjudaginn 8. mars og hefjast báðir tónleikarnir kl.18
Engin kennsla á öskudag
Kæru nemendur og foreldrar. Við minnum á að það er frí í Nýja tónlistarskólanum á öskudag, miðvikudaginn 2. mars.
Jólatónleikar
Nú er síðasta kennsluvikan fyrir jólafrí að hefjast. Við verðum ekki með hefðbundna blandaða jólatónleika þetta árið vegna sóttvarna. Hinsvegar verða árlegir nemendatónleikar hvers kennara. Það eru nokkrir hlutir sem við viljum biðja ykkur um að athuga fyrir tónleika: -Grímuskilda er fyrir alla gesti fædda 2006 og eldri. -Við biðjum um að einungis tveir gestir komi með hverjum... Lesa meira
Vetrarleyfi
Frá föstudeginum 22. október til þriðjudagsins 26. október verður vetrarleyfi í Nýja tónlistarskólanum. Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 27. október.
Skólaslit
Kæru nemendur og foreldrar. Skólaslit Nýja tónlistarskólans verða föstudaginn 28. maí kl.18 í Grensáskirkju. Þar verða afhent prófskírteini fyrir áfanga- og stigspróf sem nemendur hafa tekið á skólaárinu. Einnig verður boðið upp á tónlistarflutning. Athöfnin tekur innan við 30 mínútur. Þó létt hafi verið á sóttvarnarreglum biðjum við fólk um að virða fjarlægðamörk. Vortónleikar Vegna sóttvarna höfum við... Lesa meira
Hóptímakennslan hefst aftur
Kæru nemendur og foreldrar Nú hefur verið létt á sóttvarnarreglunum þannig að við getum aftur farið að kenna hóptíma í tónfræðigreinunum frá morgundeginum, fimmtudeginum 15. apríl. Við þurfum samt ennþá að biðja foreldra að koma ekki inn í skólann nema brýna nauðsyn beri til. Vonandi höldum við áfram að geta létt af takmörkunum á næstunni.