Námskeið fyrir lengra komna nemendur og kennara
13.10.15
Mánudaginn 19. október, frá kl.18 til 20, mun Gunnhildur Ottósdóttir, sjúkraþjálfi, halda námskeið fyrir lengra komna nemendur og kennara. Hún mun fjalla um:
Álagseinkenni/stoðkerfiseinkenni tengd hljóðfæraleik.
Mögulega áhættuþætti.
Forvörn gegn þeim og mikilvægi góðrar líkamlegrar og andlegrar heilsu.
Fara yfir grunnatriði í góðri líkamsbeitingu í standandi og sitjandi stöðu.
Sýna/æfa léttar æfingar fyrir og eftir hljóðfæraæfingar/-leik.