Nám í Nýja Tónlistarskólanum

Hafir þú áhuga á að sækja um í Nýja tónlistarskólanum biðjum við þig um að fara inn á sérstaka skráningarsíðu skólans.

Fara á skráningarsíðu

Ef einhverjar spurningar vakna, eða þig vantar aðstoð, þá endilega sendu okkur línu.

×

Skólaárið að hefjast

15.08.19

Kæru foreldrar og nemendur Skólastarfið í Nýja tónlistarskólanum hefst fimmtudaginn 22. ágúst samkvæmt stundarskrá.   Kennarar munu hafa samband við ykkur í gegnum síma eða tölvupóst til að finna hentugan tíma fyrir hljóðfærakennsluna.   Hlökkum til að sjá ykkur!

Skólaslit

20.05.19

Skólaslit Nýja tónlistarskólans verða í Grensáskirkju kl.18, miðvikudaginn 29. maí. Við hvetjum alla nemendur og foreldra að mæta á slitin. Sérstaklega þá nemendur sem tóku stigs- eða áfangapróf á skólaárinu. Athöfnin tekur um 30 mínútur.   Gleðilegt sumar og takk fyrir ánægjulegan vetur!

Almennir vortónleikar

20.05.19

Almennir vortónleikar í maí verða: fimmtudaginn 23. föstudaginn 24. mánudaginn 27. þriðjudaginn 28.   Allir tónleikarnir hefjast kl.18

Tónfundir kennara

16.05.19

Tónfundir þar sem hver kennari er með tónleika með sínum nemendum:   Chrissie & Helga – fimmtudaginn 16. maí kl. 17:00 Ilka – laugardaginn 18. maí kl. 11 Pétur & Kristófer – mánudaginn 20. Maí kl. 18:00 Helgi – þriðjudaginn 21. Maí kl. 18:00 Forskóli – miðvikudaginn 22. Maí kl. 17:00 Galina & Jón – fimmtudaginn 23. maí kl. 17:00... Lesa meira

Tónleikar í Hörpu

13.05.19

Nemendur Nýja tónlistarskólans halda tónleika í Hörpu, nánar tiltekið Hörpuhorninu, laugardaginn 18.maí kl.14 Aðgangur ókeypis og allir velkomnir

Tónleikar rythmadeildar

09.05.19

Miðvikudaginn 15.maí kl.19:30 mun Miðstöðin, rythmadeild Nýja tónlistarskólans, halda vortónleika sína. Allir velkomnir.

Þemadagur og 40 ára afmæli Nýja tónlistarskólans

15.03.19

Á þessu ári eru 40 ár liðin síðan Ragnar Björnsson, organisti, stjórnandi og tónskáld, stofnaði Nýja tónlistarskólann. Á laugardaginn ætlum við að halda upp á þennan áfang með okkar árlegu þematónleikum. Þá mun gestum bjóðast að setjast inn á stutta tónleika, skoða skólann og þiggja léttar veitingar. Dagskrá dagsins: 10:30 Forskóli og gestir 11:00 Yngri nemendur 12:00 Samspilstónleikar 13:00 Eldri... Lesa meira

Tónleikar

01.03.19

Tónleikar verða á sal skólans fimmtudaginn 14. og föstudaginn 15.mars. Tónleikarnir hefjast kl.18, báða dagana.

Öskudagur

27.02.19

Engin kennsla er í skólanum á Öskudag.