Kæru nemendur, foreldrar og forráðamenn,

 

Eins og við höfum öll heyrt af hefur verið lagt bann á allt staðnám fram að páskafríi. Tónlistarskólinn er því lokaður í dag og á morgun. Samkvæmt dagatali skólans hefst páskafríið á mánudaginn, 29. mars, og kennsla hefst að nýju miðvikudaginn 7. apríl.

 

Kennarar munu vera í sambandi við ykkur í dag eða á morgun.

 

Við vonum að þetta ástand vari í sem skemmstan tíma og við óskum ykkur gleðilegra páska!