ryangillett-culturetrip_learnfrench-1Laugardaginn 15. febrúar verður haldinn árlegur Þemadagur Nýja tónlistarskólans. Þemað í ár er frönsk og spænsk tónlist.

Boðið verður upp á fjölda tónleika: Þeir fyrstu hefjast kl.10:30. Þar mun Forskólinn sjá um tónlistarflutning ásamt gestaspilurum

Síðan verða stuttir tónleikar í boði fram eftir deginum.
Og auðvitað, eins og áður, verður boðið upp á nýsteiktar kleinur og heitt súkkulaði.
Við hvetjum nemendur til að taka með sér bæði fjölskyldumeðlimi og vini á þennan skemmtilega dag.

Dagskrá:

10:30  Forskóli
11:00  Yngri nemendur
11:45  Yngri nemendur
12:30  Samspil
13:15  Eldri nemendur
14:00  Söngdeild