Sóttvarnir framundan
Kæru nemendur og foreldrar/forráðamenn Kennslan í Nýja tónlistarskólanum hefst í dag, miðvikudaginn 7. apríl. Vegna hertra sóttvarnareglna getum við einungis kennt einkatíma, allavega til 15. apríl þegar núverandi reglur verða endurskoðaðar. Við biðjum um að nemendur fari varlega og haldi góðri fjarlægð við aðra nemendur, sérstaklega þá sem eru í öðrum grunnskóla en viðkomandi. Spritti sig um leið og þeir... Lesa meira
Fram að páskafríi
Kæru nemendur, foreldrar og forráðamenn, Eins og við höfum öll heyrt af hefur verið lagt bann á allt staðnám fram að páskafríi. Tónlistarskólinn er því lokaður í dag og á morgun. Samkvæmt dagatali skólans hefst páskafríið á mánudaginn, 29. mars, og kennsla hefst að nýju miðvikudaginn 7. apríl. Kennarar munu vera í sambandi við ykkur í dag eða... Lesa meira
Engin kennsla á Öskudag og vetrarfrí í næstu viku
Eins og áður verður engin kennsla í Nýja tónlistarskólanum á Öskudag. Síðan minnum við á að eins og í grunnskólanum verður vetrarfrí hér mánudaginn 22. og þriðjudaginn 23. febrúar.
Foreldraviðtöl
Kæru foreldrar/forráðamenn Í næstu viku, 1. til 5. febrúar, verða foreldraviðtöl. Vegna sóttvarna, ætlum við að hafa sama háttinn á viðtölunum og var í haust. Viðtölin munu því fara fram í síma en einnig verður hægt að senda fyrirspurnir um námið í tölvupósti. Til að einfalda málið leggjum við til að foreldrar annaðhvort hringi í kennarann á þeim... Lesa meira
Gleðilegt ár!
Við óskum ykkur öllum gleðilegs árs! Kennslan í Nýja tónlistarskólanum hefst mánudaginn 4.janúar.
Engin starfsdagur mánudaginn 2. nóvember
Kennslan verður óbreytt mánudaginn 2. nóvember. Eins og áður biðjum við foreldra/gesti að reyna sem minnst að koma inn í skólann. Grímuskilda er á alla nemendur 11 ára og eldri. Baráttukveðjur! Sigurður
Haustfrí
Haustfrí verður í Nýja tónlistarskólanum frá fimmtudeginum 22. til og með mánudeginum 26. október. Hafið það gott í fríinu og farið varlega. Best að vera bara heima og æfa sig!
Grímur
Kæru foreldrar og nemendur Í ljósi aukningar á smitum á milli daga viljum við leggja til að eldri nemendur beri grímur í tímunum sínum, eins og aðstæður leyfa. Með eldri nemendum er átt við nemendur á framhaldsskólaaldri og uppúr. Svo mega nemendur yngri en það auðvitað mæta með grímur ef þau treysta sér til. Baráttukveðjur! Sigurður
Foreldraviðtöl
Kæru foreldrar/forráðamenn Ef allt væri eðlilegt þá væri ég með þessum pósti að boða ykkur í heimsókn hér í Nýja tónlistarskólann vegna foreldraviðtala. En eins og ástandið er núna þá höfum við ákveðið að halda viðtölin í síma eða tölvu. Kennararnir munu vera í sambandi við ykkur í vikunni og vonum við að þetta gangi allt vel. Úr... Lesa meira
Fjórir kennarar skólans leika í tónleikaröðinni Beethoven í 250 ár
Fjórir kennarar Nýja tónlistarskólans munu flytja Beethoven sónötur í Salnum, Kópavogi við tónleikaröð Beethoven í 250 ár. Helgi Heiðar Stefánsson 3. nóvember Jón Sigurðsson 17. nóvember... Lesa meira